Þetta eru bjórarnir
  • anorri
  • snorri-flaska

Bjór nr. 10

Bjór nr. 10

Snorri er þjóðlegt öl. Hann er bruggaður úr innlendu byggi og kryddaður með alíslensku, lífrænu blóðbergi. Snorri er margslunginn og ekki allur sem hann er séður. Hann er ósíaður, örlítið skýjaður en engu að síður ljós yfirlitum. Lyktin gefur til kynna að pundið sé þungt í Snorra, en annað kemur í ljós við smökkun; það er létt yfir honum og ferskleiki í fyrirrúmi. Eitt af því sem gerir Snorra enn meira spennandi er ljúffengur og framandi ávaxtakeimur sem blandast skemmtilega við hinn villta lyngkeim. Snorri er aðgengilegur bjór og hentar t.d. vel með léttri villibráð. Við erum ákaflega stolt af Snorra og sýnum honum tilhlýðilega virðingu með því að kenna hann við sjálfan Snorra Sturluson sem hóf búskap sinn á Borg á Mýrum. 



Þetta eru bjórarnir

anorri

Bjór nr. 10

Hver það verður, veit nú enginn

 
Vef_stor

Surtur 8.1

Væntanlegur

 
judas

Júdas nr. 16

Páskabjór Borgar 2013 er Júdas Nr.16, 10,5% Quadrupel í belgískum stíl sem svíkur engan.

 
ulfurulfurlogo

Úlfurúlfur nr. 17

Úlfur Úlfur er dæmisaga um tvöfeldni. Fernskonar humlar leika lausum hala, grimmir og beiskir í bragði! Grr. Grr.

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica