Beint í leiðarkerfi vefsins.
Bjór er um 95% vatn. Allt vatn í framleiðslu Borgar er fengið úr Gvendarbrunnum, sem er sama lind og Reykvíkingar draga allt sitt neysluvatn úr.
Ger hefur ótrúlega mikið að segja um hvernig bjór bragðast. Borg Brugghús notast ekki aðeins við eina tegund af geri, heldur leitast við að fá rétt ger fyrir hvern stíl frá gerbönkum í Ameríku og Þýskalandi, sem síðan er ræktað upp af ástúð og umhyggju.
Humlar eru nýgræðingarnir í hópi bjórhráefna. Þótt talið sé að humlar hafi verið notaðir við ölgerð að einhverju leyti á afviknum stöðum í Mið-Evrópu fyrir um 1000 árum, voru humlar ekki notaðir almennt til ölgerðar fyrr en fyrir um 500 árum síðan. Talið er að menn hafi byrjað að framleiða áfenga drykki úr korni (öl) fyrir 8.000 árum síðan. Humalplanta er fjölær klifurplanta sem er náskyld kannabis. Notaðir eru þurrkaðir könglar kvenplöntunnar til ölgerðar, en humlar innihalda ýmis bragð- og ilmvirk efni sem er misjafnt eftir yrkjum. Humlarnir sem eru notaðir í Borg koma alls staðar frá, t.d. Ameríku, Þýskalandi og Slóveníu.
Megnið af maltinu sem notað er í Borg er ræktað og maltað í Svíþjóð og Finnlandi. Sekkir frá enskum, belgískum og þýskum framleiðendum slæðast með annað veifið.